11.05.2012 22:16
Lokahóf og viðurkenningar

Mjög góð mæting var á lokahóf SKIS síðastliðinn þriðjudag og runnu pitsurnar vel ofaní svangan mannskapinn. Stjórn SKIS vill þakka þjálfurum, iðkenndum, foreldrum, starfsmönnum svæðisins og öllum öðrum sem komu að starfinu í vetur. Árangur iðkennda hjá SKIS hefur verið frábær í vetur og er það von stjórnar að allir mæti endurnærðir í Stafdalinn í haust til að takast á við nýjan skíðavetur.
Eftirfarandi iðkenndur fengu viðurkenningar:
Gullhjálmurinn Aron Steinn
11 ára og eldri
Besta ástundun Eiríkur Ingi
Framfarir Helga Jóna
Efnilegastur Sigurður Orri
10 ára og yngri
Besta ástundun Hinrik Logi
Framfarir Jóhanna Lilja
Efnilegust Rósey
Aukaverðlaun vegna góðs árangurs, ástundunnar og framfara í vetur hlutu:
Daníel Freyr
Elísa Maren
Helena Lind
Erna Hörn
Hinrik
Embla Rán
Hrafnkell Ísar
03.05.2012 23:24
Lokahóf SKÍS
Veittar verða viðurkenningar og farið í leiki.
28.04.2012 15:17
Vetrarlok
Eru ekki eitthvað af fólki sem á yfir höfði sér leiðinleg verkefni 1. mai ???????????
Mig vanta aðstoð við að ganga frá höldum, skála og fleiru. Ef þið hafið áhuga og viljið fresta leiðinlegu verkefnunum eruð þið hjartanlega velkomin í Stafdal á 1. mai. Stefnt er að því að byrja svona um 10:00 og reiknað með ca 3 tímum ef það finnast 5-8 manns í jobbið.
FYRSTIR SKRÁ FYRSTIR FÁ
Endilega setjið nöfnin ykkar í athugasemdir hér að neðan svo við stöndum ekki uppi með 50 verkefnalausa foreldra. :-)
27.04.2012 23:50
Björnsmót 10 ára og eldri & Austurlandsmót 13 ára og eldri
- Lokahóf SKIS verður haldið fljótlega í maí.
- Skíðaþing á Ísafirði helgina 11-12 maí og stefnir SKIS á að senda amk 1 fulltrúa.
26.04.2012 21:46
Björnsmót 26. apríl (myndir 9 ára og yngri)
26.04.2012 14:12
Skíðakynning Skíðasports
24.04.2012 13:07
Opnun skíðasvæðis
Vegna fjölda áskoranna opnum við í dag þriðjudag 24-04-2012 kl 17:00. Einnig ætlum við að hafa opið á fimmtudag og föstudag frá kl 17:00
Það verður líka opið um helgina ef veður verður hagstætt.
23.04.2012 21:30
Fjarðaálsmót (Austurlandsmót) klárað og Björnsmót 26&27 apríl
Á fimmtudaginn verður keppni hjá 9 ára og yngri í svigi og stórsvigi.
Á föstudaginn veður keppni hjá 10 ára og eldri í svigi og stórsvigi. Einnig verður Fjarðaálsmót Alcoa (Austurlandsmót) í svigi hjá 13 ára og eldri.
Dagskrá fimmtudag, sjá hér
Dagskrá föstudag, sjá hér
Þeir SKIS iðkendur sem ætla að taka þátt skrá sig í athugasemd að neðan fyrir klukkan 19 á miðvikudag.
Æfing hjá hópi I í Stafdal á morgun þriðjudag frá 17-19, rúta frá íþr. Egs klukkan 16:15.
23.04.2012 14:23
Frábærir Andrésarleikar 2012
Skíðafélagið í Stafdal sendi 36 keppendur á Andrésarleikana og stóðu sig allir keppendur með stakri prýði. Keppendunum fylgdu fjölmörg systkini, foreldrar og aðrir forráðamenn og var m.a. gaman að sjá þónokkurn hóp velunnara skíðafélagsins sem ekki eiga lengur keppendur á Andrés, en mæta samt.
Veðrið var yndislegt alla dagana, mjög stillt, hóflega kalt og sólin lét sjá sig einstöku sinnum og voru aðstæður í Hlíðarfjalli með besta móti.
Sérstaklega var gaman að sjá að keppendur skíðafélagsins skiluðu sér mjög vel niður brautirnar í keppnunum og var lítið um byltur. Keppendur SKIS hafa aldrei komið heim með fleiri verðlaun en í ár, því alls komu 14 verðlaun austur og þar af einn Andrésartitill og er það fyrsti Andrésartitillinn sem vinnst síðan skíðafélagið í Stafdal var stofnað.
Eftirfarandi keppendur komust á verðlaunapall:
Stjörnuflokkur María 3. sæti
Stórsvig 14 ára drengir Eiríkur Ingi 5. sæti
Svig 14 ára drengir Eiríkur Ingi 4.sæti
Svig 12 ára drengir Aron Steinn 6. sæti
Stórsvig 12 ára drengir Aron Steinn 2. sæti
Stórsvig 12 ára drengir Sigurður Orri 6. sæti
Stórsvig 10 ára drengir Hinrik Logi 6. sæti
Stórsvig 10 ára stúlkur Embla Rán 2. sæti
Svig 10 ára stúlkur Embla Rán 2. sæti
Stórsvig 9 ára stúlkur Elísa Maren 4. sæti
Svig 9 ára stúlkur Elísa Maren 5. sæti
Stórsvig 7 ára drengir Daníel Freyr 5. sæti
Stórsvig 7 ára stúlkur Rósey 1. sæti
Stórsvig 7 ára stúlkur Jóhanna Lilja 2. Sæti
Stjórn SKÍS þakkar öllum keppendum, þjálfurum, foreldrum og öðrum sem lögðu hönd á plóginn fyrir frábæra Andrésarleika.
16.04.2012 16:40
Ísafjörður
15.04.2012 21:41
Borið undir skíði
Á Egilsstöðum verður opið hús í bílskúrnum hjá Þresti og Guðnýju Sólvöllum 5 á morgun mánudagskvöld. Taska með áburði og áhöldum á staðnum og Hafþór verður á staðnum á milli kl 20-21 til að aðstoða þá ekki eru með allt á hreinu.
Á Seyðisfirði verður opið hús í áhaldahúsinu kl 20-22. Aðstoð og áhöld á staðnum.
15.04.2012 21:29
Æfingar
Það verður boðið upp á æfingar á Akureyri á þriðjudag og miðvikudag fyrir þá sem verða mættir á svæðið. Æfingarnar eru aðallega hugsaðar fyrir þá krakka sem keppa í Strýtunni til að venjast þeim brekkum. Æfingarnar verða bara í Strýtunni og verður tekið fyrir svig á þriðjudaginn og stórsvig á miðvikudaginn.
Æfing á miðvikudegi byrjar kl 12.00 og eru þeir sem ætla að mæta beðnir um að senda póst á hugrun.hj@est.is sem fyrst svo við höfum einhverja hugmynd um fjölda.
Ef einhverjir verða mættir á þriðjudegi, þá endilega setjið ykkur í samband við Dóra.
14.04.2012 23:18
Stafdalur 14 apríl
Hæ
Undir flipanum "myndir" má sjá myndir úr Stafdal frá því í dag.
Frábær dagur að baki í bliðskapar veðri og brakandi sól.
Fengum ánægjulega heimsókn snjósleðamanna úr Fjarðabyggð. Björgunarsveitarmenn frá Ísólfi komu á gamla góða Unimok og svo byrtist flugvél undir lok dags auk fleirri góðra gesta.
Getur þú fundið flugvélina á mynd 16?
Sjáumst í Stafdal á morgun...ætlar þú ekki örugglega á skíði á morgun?
14.04.2012 09:07
Allir á skíði
Aðstæður gerast ekki betri og um að gera að skella sér á skíði.
13.04.2012 13:14
Æfingar um helgina
Um helgina verða æfingar sem hér segir:
Laugardagur kl 10.00-13.00 Hópur 1 og hópur 2 Þjálfarar Hafþór, Unnur og Smári Fjalar
Laugardagur kl 14.30-16.00 Hópur 1 Þjálfari Hafþór
Sunnudagur kl 9.30-12.30 Hópur 1 Þjálfarar Hafþór og Sigga Baxter
Á laugardagsmorguninn verða lagðar brautir og þá verður tímataka.
Á sunnudagsmorguninn verða brautir og tækniæfingar.
Á öllum æfingum eiga að vera til taks bæði stórsvigsskíði og svigsskíði.
