08.02.2012 19:00
Oddsskarðsmót
Oddsskarðsmót:
Allir iðkendur 6-12 ára og eldri verða skráðir til keppni um helgina nema beiðni komi um annað. Iðkendur 5 ára og yngri þarf að skrá (keppa með 6 ára). Upplýsingar sendist á mbk@verkis.is Þarf að koma fram full nafn, fæðingarár og í hvaða greinum skal keppa.
Mótsgjald er 750 kr fyrir hverja grein og greiðist á staðnum af keppanda. Númer afhent við greiðslu í skíðaskálanum í Oddsskarði. Nánari upplýsingar á heimasíðu SFF (http://sff.123.is/home/).
Afskráningu eða skráningu 5 ára og yngri skal senda fyrir kl.: 18:00 annað kvöld.
08.02.2012 14:41
Ótitlað
Í dag miðvikudag 8. febrúar ætlum við á Seyðis að hittast við íþróttahúsið kl 17:00.
Þar ætlar Kolla að deila á okkur harðfisk til að selja í bænum. Allir sem hafa áhuga á að taka
þátt setji sig í samband við Kollu og /eða mæti í dag við íþróttahúsið. Söfunun er eyrnamerkt þeim sem taka þátt !
08.02.2012 11:27
Stafdalur - Æfingar vika 6
Sæl
Mikinn snjó hefur tekið upp í Stafdal og göt á stökum stað enn er þó snjór upp að mastri 7. Unnið er að lokun svæða sem eru komin upp úr svo hægt verði að opna komi smá föl.
Það er ekki forsvaranlegt að opna eins og staðan er í dag einkum vegna smáteina sem liggja ofan á snjónum.
07.02.2012 20:35
Oddsskarðsmót - Æfingarferð
Fyrirhugað er að halda Oddsskarðsmót um komandi helgi, sjá nánar á heimasíðu SFF (http://sff.123.is/home/). Ákvörðunar er að vænta á morgun miðvikudag.
Verði ekki unnt að halda Oddsskarðsmót stefni SKIS á æfingarferð norður yfir heiðar. Nánari upplýsingar síðar!
07.02.2012 15:24
Ótitlað
Komið öll sæl, verði ekki farið í fjallið í dag þriðjudag 7. febr hittumst við í íþróttahúsinu á Seyðis kl 17:00 til 18:30 leikum okkur og förum í góðan þrekhring, teygjur og bros !!!
Sé ykkur sem flest :O)
06.02.2012 15:20
Ótitlað
Rúta fer frá íþróttahúsinu á æfingu í dag mánudag. Rúta fer kl. 16:15
06.02.2012 14:44
Æfing í dag mánudag frá 17-19
Það verður æfing í Stafdal í dag, 6. febrúar, frá 17-19.
Sameinast í bíla við íþróttahúsið á Egilsstöðum þar sem engin rúta verður í dag.
Það hefur hlýnað mikið eftir hádegið í Stafdal og færið farið að mýkjast. Smá steinar á stökum stað svo fara þarf gætilega á "nýju" skíðunum.
Taka stórssvigsskíðin með í dag!
06.02.2012 13:39
Aukaæfing í dag?
Það verðu aukaæfing í dag ef veður leyfir hjá hópum I og II.
Oddsskarðsmót er fyrirhugað um helgina og útlit til æfinga næstu daga ekki hagstætt. Þeir sem hafa tök á að mæta í dag endilega láta sjá sig.
Æfing frá 17-19.
Frekari upplýsingar koma klukkan 15 á heimasíðuna svo fylgist með þar.
03.02.2012 17:04
Æfing laugardaginn 4 febrúar
Ef ekki verður unnt að opna í Stafdal á morgun, laugardaginn 4. febrúar, ætlar Hafþór að vera með æfingur í Oddsskarði frá kl.: 12-14.
Æfingakrakkar greiða daggjald eða 800 kr. í lyftuna.
Þeir sem ætla að fara og hafa laust pláss endilega skráið ykkur í "athugasemd" að neðan.
03.02.2012 12:24
Andrésar Andarleikarnir
Sameiginlegt gisting á Andrés Andarleikunum verður á KEA í ár líkt og undarfarin ár.
Þeir sem náð hafa grunnskólaaldri hafa þátttökurétt á Andrésar Andarleikunum.
Þeir iðkendur sem ekki hafa þátttökurétt á Andrésar Andar leikana í ár, Þ.e.a.s. iðkendur fæddir 2006 og síðar eru einnig velkomin með og þurfa ekki að eiga eldri systkini sem eru þátttakendur.
Leikjabraut í Ævintýraleiðinni fyrir 7.ára og yngri (2004-2005) eru opin öllum í Hlíðarfjalli nema þegar "keppni" í leikjabraut stendur yfir.
Sendið upplýsingar um nöfn foreldra (aðstandenda) og barna (einnig barna sem ekki hafa öðlast keppnisrétt) í síðasta lagi sunnudaginn (1900) 4. febrúar. Athugið að krakkar sem ekki hafa öðlast keppnisrétt sökum ungs aldurs þurfa ekki að greiða fyrir gistingu á KEA.
Skráning og frekari upplýsingar mbk@verkis.is
02.02.2012 20:42
Æfingar og rúta vika 5 og 6
Sæl
Dóri verður í fríi á morgun, laugardag og næstu viku. Hafþór sér um æfingar á föstudag og laugardag. Í næstu vikur verður Hafsteinn með Hafþóri þá virku daga sem æfingar eru fyrirhugaðar.
Það vantar bílstjóra á rútuna (16 manna) á morgun og næstu vikur. Venjulegt ökuskírteini er ekki nægjanlegt. Sé einhver sem heftur tök á því, þó ekki sé nema einhver daginn, endilega sendið mér línu að öðrum kosti þurfa foreldrar að sjá um að koma börnunum til og frá Stafdal.
01.02.2012 15:08
Hittingur hjá 13 ára og eldri
13 ára og eldri eiga að mæta í bílskúrinn Litluskógum 12 kl 17 í dag miðvikudag.
Það þarf að lagfæra stangir og veitir ekki af nokkrum dugnaðarforkum.
31.01.2012 08:38
Hittingur hjá Unni
Ef það verður lokað í fjallinu í dag, þá er Unnur með hitting í íþróttahúsinu á Seyðis kl 17:00.
Mæta með innanhússkó með sér og þið leikið ykkur í salnum - hörkuþrek þar!!!
Allir skíðakrakkar velkomnir - litlir og stórir.
29.01.2012 16:39
Æfingarhelgin - myndir
Myndir helgarinnar komnar inn á heimasíðuna undir flipanum "myndir".
Þökkum öllum fyrir frábæra helgi og aðstöðuna á SFK
stjórn SKIS
27.01.2012 17:45
Æfingarhelgi SKSI 28-29 Janúar
Til upplýsinga:
- Boðið verður upp á ristaðar samlokur í hádeginu á sunnudaginn, ávextir og drykki.
- Væri gott að fá 1-2 foreldra til viðbótar til að gista með börnunum. (eyglobjoh@simnet.is)
Dagská helgarinnar:
| LAUGARDAGUR 28. JANÚAR | |
| 10.00 - 16.00: | Skíðaæfing hjá hópum I og II |
| 16.00 | Farið niður í íþróttahúsið á Seyðisfirði þar sem við setjum dótið okkar upp á loft (þar sem við gistum) og fáum okkur svo hressingu :) |
| 17.00 | Bíó (Almenn sýning), hvetjum sem flesta til að mæta :) |
| 19.00 | Pizza |
| 19.30 - 22.00 | Frjáls tími í íþróttasal |
|
| Gisting |
|
|
|
|
|
|
|
| SUNNUDAGUR 29. JANÚAR |
| 08.45 - 09.30 | Unnur verður með Jóga fyrir þá sem gista |
| 09.30 - 10.15 | Morgunmatur |
| 11.00 | Farið í Stafdal |
| 12:30-13:00 | Hádegismatur (Skipt eftir hópum ef þarf) |
| 11.30 - 14.30 | Skíðaæfing hjá hópum I og II |
Kostnaður er 1.000- kr á hvern einstakling, barn og fullorðinn, innifalið í því er laugardagskaffi, pitsa, morgunmatur sunnudag auk hádegishressingar sunnudag.
- 1
- 2
