13.04.2012 10:17
Æfing föstudag
Rúta frá íþróttahúsinu á Egilsstöðum kl 16.15.
10.04.2012 14:05
Foreldrafundur v. Andrésar Andarleikanna 2012
Sæl öll sömul!
Nú er rétt rúm vika í Andrésar Andarleikana og því boðar SKIS til foreldrafundar í skíðaskálanum í Stafdal klukkan 20:00 fimmtudagskvöldið 12. apríl. Þessi fundur er ætlaður foreldrum barna sem keppa á Andrésar Andarleikunum 2012
Dagskrá:
1. Farastjórar - Björgvin Rúnar & Elís
2. Dagskrá leikanna (sjá www.skidi.is)
3. Orð frá þjálfurum
4. Nesti í fjallið alla daga er sameiginlegt
5. Sameiginlegur hittingur
6. Önnur mál
Stjórn SKIS
10.04.2012 13:19
Stafdalur opnar á morgun
Það er verið að safna saman snjó í brekkurnar í Stafdal og verður svæðið opnað á morgun miðvikudag. Það er of vont veður á svæðinu til að hægt sé að opna í dag.
Æfingar fram að helgi verða sem hér segir
Miðvikudagur kl 17-19 Hópur 1 og hópur 2
Fimmtudagur kl 17-19 Hópur 1
Föstudagur kl 17-19 Hópur 1 og hópur 2
06.04.2012 20:42
Páskaeggjamót í Oddsskarði
Gleðilega páska
Sjá skilaboð frá Fjarðabyggð að neðan.
Páskaeggjamótið fyrir 8 ára og yngri verður haldið á morgun laugardag kl. 14:00, þar sem spáin fyrir Páskadag er ekki mjög góð. Þar sem þessi breyting er ákveðin með skömmum fyrirvara á bið ég ykkur sem sjá þetta að láta vini og kunningja vita af þessari breytingu.
05.04.2012 09:07
Páskafrí
Næstu æfingar verða þriðjudaginn 10. apríl og miðvikudaginn 11. apríl kl 17-19 í Oddsskarði.
Rúta fer frá íþróttahúsinu á Egilsstöðum kl 16 báða dagana, en þurfum við endilega að vera með 1 bíl kláran til að keyra með rútunni ef hún rúmar ekki alla. Endilega gefið ykkur fram ef þið getið verið til taks.
03.04.2012 07:59
Æfing 3 apríl
Stórsvig í dag
Frábært veður í dag svo það er kjöri að skella sér á skíðaæfingu. Dóri og Haffi verða báðir í dag. Frost, sól og gott skíðafæri. Núna klukkan 8 er -9°C í Oddsskarði en spáin gerir ráð fyrir hitastigi um frostmark um hádegi.
Rútan fer frá íþróttahúsinu klukkan 12 í dag. Æfing í Oddsskarði frá 13-15.
Eins og skráningar standa núnan klukkan 8:00 þá þarf auka bíl með rútunni. Árný (Björgvin) mætir þá við íþróttahúsið og verður til taks ef þörf er á. Guðný til vara.
Á morgun þarf auka bíl með rútunni og verður Sigga H. á bíl þá.
01.04.2012 12:04
Æfingar fyrir páska (2, 3 og 4 apríl)
- Jón Egill: Jóhanna, Embla, Siggi og Ísar
- Eygló: Eiríkur, Eggert og Aron Steinn.
- Steini: Trausti, Hinrik, Hafþór, Svanur.
- Björgvin: Rósey, Bjartmar og Daníel.
Farþegar setja sig í samband við bílstjóra.
Þriðjudagur 3. apríl:
- Rúta frá íþróttahúsinu. Dóri bílstjóri, þjálfarar Dóri og Hafþór.
- Brottför klukkan 12:00
- Ef þörf verður á auka bíl getur Árný (Björgvin) keyrt. Ekki þörf eins og staðan er í dag.
- Rúta frá íþróttahúsinu - Agnar bílstjóri og Hafþór þjálfari.
- Brottför klukkan 12:00
- Ef þörf er á bíl getur Sigga H. keyrt. Ekki þörf eins og staðan er í dag.
31.03.2012 19:55
Æfing mánudaginn 2. apríl
- Jón Egill: Jóhanna og Embla.
- Eygló: Eiríkur, Eggert og Aron.
- Steini: Trausti, Hinrik, Helga Jóna og Andri Björn.
- Björgvin: Rósey, Bjartmar og Daníel.
- Hafþór: Ísar, Siggi, Jói og Svanur. (Ef það bætist við bíll kemur hann í stað Hafþórs)
30.03.2012 22:07
TM færði SKIS hjálma í dag
30.03.2012 21:10
Æfing Laugardaginn 31. Mars
- Dóri: Aron, Eggert og Eiríkur Ingi
- Magnús: Siggi, Jói, Trausti og Hinrik
- Gugðeir: Daníel, Rósey og Bjartmar
- Gunna: Embla, Bjartur Berg, Jóhanna og Ísar. Jóhanna og Ísar klár heima rétt fyrir 10.
- Unnur: Hugrún og Gunnar. Fer frá SFK
30.03.2012 15:11
Kynning
Sportvík verður með vörur sýnar til sýnis og sölu í skíðaskálanum í Oddsskarði á mánudaginn
02-04-2012 á opnunartíma skíðasvæðisins. Sportvík selur nánast allt sem viðkemur skíðaíþróttinni, frá fatnaði til snjóframleiðslukerfa. Sjón er sögu ríkari.
,
29.03.2012 21:49
Æfingar næstu daga
Sæl
Því miður þarf að snjóa talsvert svo hægt verði að skíða í Stafdal meira á þessum vetri
Í undirbúningi er því að æfa í Oddsskarði sem hér segir næstu daga:
- Laugardaginn 31 mars frá 11-14 - Tækni og frjáls skíðun (taka bæði svigskíði og stórsvigskíði með)
- Mánu, þriðju- og miðvikudag. 2-4 apríl frá sennilega frá 13-15 - Brautir eftir aðstæðum
Mjög mikilvægt að menn svari sem fyrst og helst fyrir kl 17 í dag föstudag svo tími gefist til skipulagningar.
28.03.2012 15:36
Æfing fellur niður í dag
Það er vorfæri í Oddsskarðir og aðstæður erfiðar til æfinga því hefur verið ákveðið að fella niður æfingar í dag.
Í skoðun er æfingarfyrirkomulag um helgina og næstu viku...
28.03.2012 08:05
Kröflumót - úrslit
27.03.2012 10:07
Æfing í Oddsskarði
Stefnt er á æfingu í Oddsskarði á morgun miðvikudag kl 17-19.
Rúta verður frá íþróttahúsinu á Egilsstöðum kl 16 og kemur til baka um kl 20.
